2.4.2025. Surtseyjarfélagið 60 ára og aðalfundur
Aðalfundur Surtseyjarfélagsins var haldinn þ. 2. apríl 2025 í húsi Náttúrufræðistofnunar í Urriðaholti í Garðabæ. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf auk fræðsluerinda um rannsóknir í eynni að þeim loknum. Inntaka nýrra félaga fer fram á aðalfundi og bættust sextán nýir félagar við hópinn að þessu sinni. Að tilefni 60 ára afmælis félagsins tilnefndi stjórn þrjá félaga að hljóta heiðursnafnbót félagsins fyrir framlag sitt til rannsókna í Surtsey og störf í þágu félagsins. Þetta eru þau Unnur Skúladóttir, fiskifræðingur, sem var einn stofnfélaga Surtseyjarfélagsins árið 1965 og sinnti leiðangursstjórn og rannsóknum í hafi við eynna, Erling Ólafsson, skordýrafræðingur sem vann rannsóknir í Surtsey um áratuga skeið, og Borgþór Magnússon, plöntuvistfræðingur og leiðangursstjóri til margra ára. Þau eru því heiðursfélagar Surtseyjarfélagsins, en áður hafa fimm nú látnir félagar hlotið þessa nafnbót.
Þá urðu kaflaskipti í félaginu þegar Hallgrímur Jónasson lét af embætti eftir sextán ár sem formaður Surtseyjarfélagsins. Við honum tók Hólmfríður Sigurðardóttir, líffræðingur og umhverfisgyðja hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Hún er þriðji formaður félagsins og fyrsta konan til að taka við því hlutverki. Nýkjörin stjórn félagsins þakkar Hallgrími, sem og öðru fráfarandi stjórnarfólki, fyrir samstarfið og býður Hólmfríði velkomna í brúna. Að loknum aðalfundarstörfum fluttu Karl Gunnarsson, sjávarlíffræðingur við Hafrannsóknarstofnun, og Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur við Háskóla Íslands, tvö erindi um rannsóknir sínar í Surtsey.
Aðalfundurinn var vel sóttur af félögum og öðru áhugafólki bæði í Urriðaholtinu og á netinu, og þakkar stjórnin öllum fyrir þátttökuna.

Hallgrímur Jónasson, fráfarandi formaður (2009-2025), og Hólmfríður Sigurðardóttir, nýkjörinn formaður. Hún er bara sá þriðji í 60 ára sögu félagsins en Steingrímur Hermannsson heitinn gegndi fyrstur því embætti frá 1965 til 2009. Ljósm. Lovísa Ásbjörnsdóttir